Loksins kominn desember :)Erna Stefnisdóttir

Hæhæhæ allir :)

Já það er loksins kominn desember :) Rosalega er ég ánægð með það! Ég verð samt að viðurkenna að mér finnst alveg hrikalega stutt síðan síðustu jól voru, þetta er ekkert smá fljótt að líða! En það hefur alveg sína kosti og galla :D

Dimmiteringin er búin, hún var síðasta föstudag og það var alveg rosalega gaman. Búningarnir okkar náðu til Eyja á réttum tíma og hér kemur ein sæt mynd af okkur vitleysingunum :D



Sjáiði hvað við vorum fín :D
En já eins og ég sagði þá var þetta rosalega gaman og bara mjög vel heppnað.. ég verð að viðurkenna það að það var rosalega spes að vera eina edrú manneskjan en ég hefði samt sko ekki viljað hafa misst af þessu.. maður gerir þetta jú bara einu sinni :)
Við fórum svona um bæinn og vöktum nokkra kennara og kíktum í nokkur vel völd fyrirtæki. Það var rosalega gaman þegar við fórum uppá Sóla að heilsa uppá krakkana, við tókum fugladansinn með þeim og þau voru alveg alsæl með heimsóknina.. þó að nokkrir hafi reyndar farið að gráta :/

Núna er bara einn og hálfur kennsludagur eftir og svo hefjast prófin. Þau byrja nú ekki hjá mér fyrr en á mánudaginn og ég hlakka til að byrja, sérstaklega eftir daginn í dag þar sem að ég fékk að vita það að ég þarf ekki að taka lokaprófið í efnafræði því ég var með 8 í vetrareinkunn, en þá má maður sleppa lokaprófinu, ég er alveg alsæl með það :D Þannig að ég fer bara í 6 próf :)
Svo fer ég á jólahlaðborð á laugardaginn :D Ég held ég hafi bara aldrei farið á jólahlaðborð sveimérþá! Það verður gaman að prufa það :)

Það vill svo skemmtilega til að allir mínir uppáhalds strákar eiga afmæli á einum og sama deginum... í dag :D Til hamingju með afmælið elsku Friðrik, Andri og Sindri minn ;***

Jæja ég er farin í bað :) Bið að heilsa ykkur í bili!

P.s mér finnst þið sko ekki vera a standa ykkur í kommentunum... má ekki bæta úr því ??? ;)

Bara mánuður í jólin :DErna Stefnisdóttir


Jájá í dag er sko bara mánuður í aðfangadag ;D Ohh skemmtilegasti tími ársins er loksins að fara að byrja. Fyrsti í aðventu næstu helgi og allir að fara að skreyta og jólalögin byrja að heyrast í útvarpinu og prófin byrja :D

Ég hélt ég væri að fara að útskrifast 22. des sem sagt á mánudeginum fyrir þorláksmessu en nei ég tók eftir því í morgun að útskriftin er laugardaginn 20. des.... það meikar alveg meira sence! haha... þannig að þið þarna sem ég er búin að bjóða heim í kaffi og svona 22. des, þið kannski látið sjá ykkur 20. des frekar :D
Ekki það að ég sé eitthvað búin að bjóða fólki.. er svona meira búin að tékka á fólkinu sem kemur ofan af landi til eyja fyrir jól, hvort þau verði ekki örugglega komin :) Kannski þarf ég bara ekkert að bjóða neinum... égh ætla ekkert að vera of örugg með mig, ég þarf alveg að hafa fyrir því að ná öllum þessum prófum :) En ég ætla að gera mitt allra allra besta og meira get ég ekki gert :D

Hvort sem ég útskrifast eða ekki þá er ég allavega að fara að dimmitera á föstudaginn!! Það verður örugglega alveg mega gaman og hlakka ég ekkert smá tiL! Það verður frekar spes að vera eina edrú manneskjan en ég get þá bara gert grín af hinum krökkunum eftir á! :) Búningarnir eru væntanlegir hvað úr hverju og eg hlakka ekkert smá til að máta... haha þeir eru svo flottir :)

Jæja... vildi bara aðeins tuða smá :) Bið að heilsa í bili!!
Kveðja, Erna sem er farin að hlakka svoooo til jólanna!!! :D

MúsímúsErna Stefnisdóttir


Hæjjj :)

Alveg kominn tími á smá færslu... þó ég hafi ekkert rosalega mikið að segja! Vil ekki láta líða of langt á milli svona eins og sumir ;) haha

Ég fór til reykjavíkur á laugardagskvöld og kom aftur heim í gærkvöldi. Þetta var bara alveg einstaklega vel heppnuð ferð þó ég hafi ekki gert mikið af mér.. heimsótti fólkið mitt og þar á meðal fór ég til Helgu og Robba og hitti litlu frænku mína hana Lilju :) Hún er sko bara yndisleg og hún var alveg að fíla mig sko þó hún hafi grátið smá hjá mér fyrst.. hún var bara aðeins að stríða mér :) Svo bara urðum við svaka vinkonur og við vorum bara á spjallinu en ég skildi ekkert hvað hún var að segja mér samt.. hún var bara eitthvað að veifa höndum, örugglega einhverskonar barnatáknmál og svo kom stundum nokkurskonar hjal :) Hún er bara dúlla og er alveg einstaklega vel heppnuð og gengur bara vel hjá litlu fjölskyldunni :) Við gáfum skvísunni auðvitað nokkrar gjafir og ein af þeim var ótrúlega flottur órói á rúmið hennar og ég sver það að þetta er svo flott að mig langar í svona á mitt rúm! Það kemur ljós og munstur í loftið, hann spilar lög og líka hægt að velja róandi sjávarhljóð og svo eru tuskudýrafiskar sem snúast í hringi :D Bara skemmtilegt!

Já svo fyrir utan það að ég heimsótti litlu fjölskylduna þá hitti ég Kristínu mína og Andrann minn og svo heimsóttum við mamma restina af ættingjunum :) Ég var líka dugleg og verslaði mér aðeins og maður komst sko í jólafílinginn, allt í jólaskrauti og jólavörum :D ekki leiðinlegt!

Þetta er komið gott í bili... ætla að fara að reyna koma mér í ritgerðarfíling :) Ég verð að sýna ykkur hvað við frænkur erum sætar saman, hérna er mynd af mér að máta Lilju.. :)



Maður horfir bara dolfallin á hana því hún er svo falleg og yndisleg :) Finnst ykkur ég ekki bara taka mig vel út ?? :D

Bæjó!

Ég á litla sæta frænku :)Erna Stefnisdóttir

Hæhæ :)

Í fyrradag, sem sagt þann 5. nóvember klukkan ca. 00:30 þá kom lítil og aufga falleg prinsessa í heiminn sem ég get ekki beðið eftir að fá að knúsa :) Helga Dóra mín og Robbi eru orðin foreldrar :D Og Bína orðin amma og mamma mín orðin ömmusystir!! haha.. hvað er ég þá? frænka móður eða móðurfrænka :D og auðvitað stóóóra frænka :D híhíhí
En já það gekk allt alveg rosalega vel og mæðgum líður vel...
Það er meira að segja búið að skíra skvísuna og fékk hún það fallega nafn Lilja Rut Róbertsdóttir :) Ég get ekki annað en að láta fylgja með mynd af ofurdúllunni.




Ég gat ekki valið bara eina mynd til að setja hérna... Ohh hún er svo sæt.. ég gæti glápt á þessar myndir heilan dag, maður gleymir sér bara ;***

Annars er bara mjög lítið að frétta... skólinn er alveg að verða búinn... ég alveg get ekki beðið eftir að það klárist!! Hlakka bara til að byrja í prófunum! Ég er samt alveg pínu kvíðin því það er stúdentspróf í húfi þannig að maður verður að vera duglegur að læra :) Við erum búin að panta okkur búninga til að dimmitera í.. það eru bara 3 vikur í það, það verður geðveikt! Flottustu búningar ever :D

Svo bara styttist í jólin :) Ohh hvað ég hlakka til. Ég vil bara fá desember núna takk fyrir pent. Ég er að fara á tónleika með Frostrósunum í byrjun desember og held ég að það verði bara jólafílingur beint í æð :) Það verður alveg örugglega æði!

Svo er ég að spá í að skella mér í borg ótta og viðbjóðs (fallega borgin mín) annað hvort á föstudaginn eða laugardaginn. Ætla aðeins að fá að klípa í þessa einstaklega fallegu frænku mína og svo líka heimsækja fleira fólk og vesenast aðeins :)

Jæja þetta er komið gott... bið að heilsa ykkur ;*

Kuldaboli úti !!!Erna Stefnisdóttir

Hæhæ!

Jæja þá eru litlu jólin búin og þá er ég bara farin að bíða eftir stóru alvöru jólunum :) Ég er ekki að grínast en ég er alveg komin með fiðring í magann ég hlakka svo til jólanna... :D Ég elska þennan tíma mest af öllum! Það er allt eitthvað svo rómó og fallegt... góð lykt allsstaðar, ljós útum allt, jólalög í útvarpinu, allir í fjölskyldunni eru heima og allir vinirnir koma heim og bara ohh svo kósý eitthvað :D Það eru bara 2 mánuðir í þetta :)

Airwaves var rosalega vel heppnað! Góð bönd að spila og við náðum að sjá allt sem okkur langaði að sjá.. nema reyndar Esju í Listasafninu því að það hvellsprakk á bílnum mínum á Sæbrautinni þegar við vorum á leiðinni þangað!! Ohh bömmer... en sem betur fer var ég með fullan bíl af karlmönnum sem sáu um þetta fyrir mig, ég hefði bara panikkað þarna útí kanti hefði ég verið ein! En þetta hafðist á smástund þó svo að þetta hefði getað endað illa sökum þess að 2 ónefndir aðilar voru mjög fullir og ákváðu að sýna bílunum hvert þeir áttu að keyra og það munaði sko litlu að þeir keyrðu bara á þá!! En já, vonbrigði helgarinnar var að missa af Esju, þó svo að við "sáum" þá í Organ kvöldinu áður, þar var bara svo troðið að maður sá ekki neitt og naut þess ekki eins vel fyrir vikið... Listasafnið er að mínu mati náttla bara einn mesti snilldar tónleikastaður fyrir eins og þessa hátíð... riiiiisa salur, rosa flott sound og alveg nóg pláss!!

Ég gerði nú líka smá annað en bara að Airwave-ast þessa helgi en það var þó ekki mikið! Ég kíkti á Helgu Dóru mína sem er sko alveg að springa, prinsessan er væntanleg eftir bara 10 daga (ef hún kemur á réttum tíma) og allt er orðið tilbúið og svona :) Fullt af litlum sætum bleikum fötum útum allt og baðborð og bílstóll og ég veit ekki hvað, ekkert smá krúttlegt og lítið allt saman :)
Guð ég hlakka svo til að sjá skvísuna og fá að máta og verða stóra frænka :D:D:D:D Vona bara að allt gangi vel og svona... hef enga trú á öðru :D Helga var bara ótrúlega hress og hún er bara rosalega heppin með það hvað þessi meðganga er búin að ganga vel hjá henni! Núna er hún reyndar aðeins komin með í bakið en við skulum vona að það verði ekkert meira og alvarlegra...
Mér finnst bara svo skrítið að fara til Helgu og spjallið okkar er um börn og þess háttar, og næst þegar ég hitti hana þá hitti ég barnið hennar... mér finnst svo stutt síðan við vorum að leika okkur með dúkkur og barbie!! haha Shit hvað maður er að verða gamall ;)


Ég er nú bara að spá í að enda þessa færslu mína með mynd af mér og Helgu Dóru, þessi færsla átti að vera um Airwaves og eitthvað en nei.. þetta sýnir greinilega hvar hugur minn er núna, Hjá Helgu minni ;****
Ég er bara svo spennt að verða stóra frænka :D




Love you Helga mín ;*

Bið að heilsa ykkur í bili!!!
Bæjó!!

Litlu jólin komin...Erna Stefnisdóttir



Það er komið að þessu!!! Airwaves byrjaði í dag!! ;D

Við förum svo öll í borgina á morgun og þá bara hefst gamanið :D
Frekar leiðinlegt reyndar að missa af fyrsta kvöldinu sem var nebblilega freekar gott, en ég er búin að skoða þetta allt saman og allt sem er í kvöld getum við séð hina dagana... nema Ourlives! Sem mér persónulega finnst alveg gjörsamlega glatað... þeir hjálpuðu mér mikið yfir próflestri síðastliðinn maí og ég myndi alveg vilja bera þá augum :D eða hvað sem maður segir... haha

Við gistum sem sagt í Mánatúninu í glæsi íbúð og munum eflaust hafa það mjög kósý!!
Sæþór og Fannar taka gítara með sem veit bara á gott... Unnþór mætir.. jafnvel með gítar líka, hvur veit? Ég skal mæta með greiðu en tíminn verður bara að leiða það í ljós hvað hann Þorsteinn mætir með! :p

Svo mun auðvitað Láran mín mæta... með sína undurfögru rödd þannig að já... partýýýýý ;D jeij, mér líður eins og litlu barni með sleikjó á jólum..

Ég er farin að halda áfram að pakka.. Ciao!

Og gleðilega hátið þið Airwaves-farar þarna úti ;)

Bold and the beautiful!!!Erna Stefnisdóttir




Hahahaha ég er búin að komast að því hvernig ég myndi líta út ef að ég væri leikkona og hefði fengið hlutverk í Bold and the Beautiful eða Guiding Light eða eikkað!!! Hahahaha
Þetta eru ægilega dramatískar myndir!







Þið getið tékkað á því hvernig þið lítið út í hlutverki ástkonu Thornes eða eikkað með því að fara á www.yearbookyourself.com mér finnst þetta ægilega fyndið :D

Annars ekkert mikið að frétta.. bara vika og 2 dagar þangað til ég fer í borgina góða að hitta fólkið mitt og hlusta á mjög svo góða tónlist :D Annars er ég að verða of sein í tíma, vildi bara sýna ykkur hvað ég væri fín sem karakter í sápuóperu!
Ciao

"vertu ánægð með þig ég er það" :)Erna Stefnisdóttir

Jáááá ég vissi ekkert hvað ég átti að skrifa í fyrirsögn.. þannig að ég tók bara Unnþór á þetta, leit aðeins í kringum mig og skrifaði það sem ég sá :) En þetta sem sagt stendur á litlu tréhjarta sem hangir á lampa á náttborðinu mínu, Kittan mín gaf mér einu sinni blómvönd með þessu hjarta á :) hehehe við áttum okkur tímabil þar sem við vorum duglegar í að gefa hvor annari blóm :) "Til þín vina mín bara grín" haha, það stóð á mínu hjarta til hennar :D hehehe good times ;)
Ég fékk að hitta Kittuna mína í svona góðar 15-20 mínútur eða svo á sunnudaginn :)
Ég sem sagt lét mig vanta á Lundaballið þannig að ég fékk ekki að eyða miklum tíma með henni.. en þetta dugði.. ég verð bara að fara að kíkja aftur í sveitina góðu við tækifæri :) Hún nebbla deildi því með mér að hún kæmi ekkert aftur til eyja fyrr en í bara Maí eða eikkað því hún fer út um jólin og eitthvað helv**** kjaftæði.. haha mér finnst það ekki nógu sniðugt :p
Annars er bara lítið að frétta, það er ógeðslega kalt úti!! Ég er ekki alveg að fíla það, alltaf þegar það byrjar að kólna þá óska ég þess að kraft gallarnir góðu vakni til lífsins og verði aftur töff... hversu þæginlegt var það bara, ég sakna þess allavega :)
Það er nóg að gera í skólanum, 3 próf í þessari viku :/ Eitt í dag og tvö á morgun! Það reddast :) Annars var ég að fatta það að ég þjáist af skólaleiða á háu stigi þessa dagana... ég einfaldlega er ekki að nenna þessu! Það er alveg örugglega bara útaf því að þetta er alveg að verða búið... ég verð allavega að hysja upp um mig brækurnar og klára þetta með stæl! Þýðir ekkert annað!

Svo er ég með eina nokkuð góða frétt.. Ég er hætt að reykja :) For good í þetta skiptið! Er ekkert búin að reykja síðan á föstudaginn og þetta bara gengur rosalega vel! Ég fæ mér bara tyggjó í staðinn og það virkar fínt! Þó að ég sé ekki búin að vera hætt lengi þá finnur maður strax mun á buddunni! Enda ekkert eðlilega dýrt að kaupa reykjur í dag! þannig að í gær þá leyfði ég mér að fara í lit og plokk og meirað segja keypti mér ilmvatn sem mig er búið að langa í síðan um jólin :D OG keypti mér nýjan hárlit sem mamma ætlar að klína í mig í dag :D já stelpur mínar... mæli með því að þið hættið að reykja... þá fyrst hefur maður efni á því að vera pæja ;) hehe
 
Awww Prins var að hoppa uppí til mín og er að biðja um kúr, ég get ekki sagt nei við þessa elsku.. bæjó !!! :)

BlahhhErna Stefnisdóttir


Jú komiði sæl litlu rollurnar mínar :D
Ég verð að segja að ég er bara nokkuð ánægð með útkomuna í spurningalistadótinu í síðasta bloggi.. þið stóðuð ykkur vel ;) Líka gaman að sjá hvað þið þekkið mig vel og svona.. :)

Ég hef ekkert að segja ykkur, það er svo ekkert að frétta! Bara skóli, vinna og heimalærdómur og já Grey´s!!!! Ég er hooked á Grey´s Anatomy! Skil ekki afhverju ég er svona svakalega eftir á að horfa á allla þessa snilldar þætti, Prison Break, Grey´s, ég á alveg eftir Desperate Housewives... ég var að ná mér í Gossip girl og Dexter þannig að þetta er svona allt að koma hjá mér..
Nú er Lundaballið í kvöld... og ég hugsa að ég láti mig vanta! Ég er að vinna til 10 í kvöld og fer svo aftur 11 í fyrramálið :S Ég skráði mig á þessr vaktir því að mig langaði ekki að fara en svo hringdi Kittan mín í mig í gær og sagði mér að hún væri að koma og vildi fá mig með á ballið ;/ ..... Ég fer þá kannski bara edrú eftir vinnu því ég nenni sko ekki að vera þunn og ónýt í vinnu á morgun.. :) Ég geri samt ekkert leiðinlegra en að fara edrú á djammið þannig að ég hreinlega veit ekki hvað ég geri :(

Það eru bara 19 dagar í Airwaves.. Bráðum kemur blessað Airwaves... systkinin fara að hlakka til... allir heyra góða tónlist... í það minnsta ágæta! ágæta, ágæta, í það minnsta ágæææææta! hehehehe :D
Guð það styttist svo í jólin, mikið hlakka ég til... :D Ég elska jólin :D

Jæja, er þetta ekki komið gott af bulli í bili..
Blogga fljótlega og hef þá vonandi eitthvað að segja ykkur ;)
Bæjó

Only by the night!Erna Stefnisdóttir

Hæææj!
úff... nýji Kings of Leon diskurinn kom fyrr en von var á.. hann lak víst á netið sem er leiðinlegt að vísu en gaman að þurfa ekki að bíða lengur, ég ætla nú samt að kaupa hann þegar hann kemur út... en nóg um það... mikið er hann góður :D Hann stenst sko allar væntingar!
Annars er bara lítið að frétta... ég var róleg um helgina bara, var að vinna báða dagana og djammaði ekki neitt! Hefði reyndar viljað fara á Tríkot en það er alveg kominn tími á smá pásu á djammi hjá mér... ég hreinlega nenni þessu ekki hverja helgi... það er nú líka bara rúmur mánuður þangað til Airwaves skellur á og þá verður mikið gaman!!! Ég, Andrea og Fannar erum komin með íbúð rétt við miðbæinn og ætlum sko að gera þetta almennilega! :D
En sökum þess að ég hef bara eiginlega ekkert að segja ykkur þá ákvað ég að vera ýkt leiðinleg og setja svona nokkrar spurningar fyrir ykkur að svara... þær voru alveg 30 og eitthvað en ég tók út svona tilgangslausar og leiðinlegar spurningar til að stytta þetta!! Sko hvað ég er góð, lámark að þið verðið góð á móti og svarið þessu fyrir mig :D Ég veit að það eru allir komnir með ógeð á þessu en so what... KOMA SVO, ef þú ert að lesa þetta ertu skyldug/ur til að svara... :D

1. Nafnið þitt:

2. Aldur:

 3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

 6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Þekkjumst við persónulega?

8. Hver er tilgangurinn með lífinu?

9. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

10. Besta minningin þín um okkur?

11. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

12. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

 13. Getum við hist og bakað köku?

14. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

15. Finnst þér ég góð manneskja?

 16. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

17. Finnst þér ég aðlaðandi?

 18. Í hverju sefuru?

19. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

20. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

21. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?


See ya!

Prófíll

  • Nafn: Erna Stefnisdóttir
  • Staður: Vestmannaeyjar!
  • Atvinna: Pizza 67
  • Um mig: Eyjapæja með meiru!
  • Annað: How u doing ?

Innskráningar kubbur

Atburðarteljari

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvað gerir þú í lífinu?

Leikur dagsins