BlahhhErna Stefnisdóttir


Jú komiði sæl litlu rollurnar mínar :D
Ég verð að segja að ég er bara nokkuð ánægð með útkomuna í spurningalistadótinu í síðasta bloggi.. þið stóðuð ykkur vel ;) Líka gaman að sjá hvað þið þekkið mig vel og svona.. :)

Ég hef ekkert að segja ykkur, það er svo ekkert að frétta! Bara skóli, vinna og heimalærdómur og já Grey´s!!!! Ég er hooked á Grey´s Anatomy! Skil ekki afhverju ég er svona svakalega eftir á að horfa á allla þessa snilldar þætti, Prison Break, Grey´s, ég á alveg eftir Desperate Housewives... ég var að ná mér í Gossip girl og Dexter þannig að þetta er svona allt að koma hjá mér..
Nú er Lundaballið í kvöld... og ég hugsa að ég láti mig vanta! Ég er að vinna til 10 í kvöld og fer svo aftur 11 í fyrramálið :S Ég skráði mig á þessr vaktir því að mig langaði ekki að fara en svo hringdi Kittan mín í mig í gær og sagði mér að hún væri að koma og vildi fá mig með á ballið ;/ ..... Ég fer þá kannski bara edrú eftir vinnu því ég nenni sko ekki að vera þunn og ónýt í vinnu á morgun.. :) Ég geri samt ekkert leiðinlegra en að fara edrú á djammið þannig að ég hreinlega veit ekki hvað ég geri :(

Það eru bara 19 dagar í Airwaves.. Bráðum kemur blessað Airwaves... systkinin fara að hlakka til... allir heyra góða tónlist... í það minnsta ágæta! ágæta, ágæta, í það minnsta ágæææææta! hehehehe :D
Guð það styttist svo í jólin, mikið hlakka ég til... :D Ég elska jólin :D

Jæja, er þetta ekki komið gott af bulli í bili..
Blogga fljótlega og hef þá vonandi eitthvað að segja ykkur ;)
Bæjó

Athugasemdir

1
Kristín skrifar:
Ég hlakka líka í fyrsta sinn að airwaves byrjar þar sem að ég mun þá sja þitt fallega feis þá:) get ekki beðið:)
27. september 2008 klukkan 19:48
2
Sindri skrifar:
Bjargaðir vaktinni hjá mér :D Svo styttist það að ég flytji í borg ótta og viðbjóðs :D!!!
28. september 2008 klukkan 01:25
3
Frikki H skrifar:
JÓLIN! JÓLIN! AFHVERJU JÓLIN????????
ÞAÐ ER STRANGLEGA BANNAÐ AÐ TALA UM JÓLIN NÚNA!!
28. september 2008 klukkan 16:59
4
Erna skrifar:
hehehehe vá who are you... The Grinch eða ??? ;) haha
28. september 2008 klukkan 17:46
5
Andri þinn skrifar:
Það er ekkert gaman við jólin :) peningasóun :) ég fæ nefnilega svo sjaldan eitthvað af viti í jólagjöf.... :D Annars er ég farinn að sakna þín viðbjóðslega mikið!
29. september 2008 klukkan 12:00

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Erna Stefnisdóttir
  • Staður: Vestmannaeyjar!
  • Atvinna: Pizza 67
  • Um mig: Eyjapæja með meiru!
  • Annað: How u doing ?

Innskráningar kubbur

Atburðarteljari

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvað gerir þú í lífinu?

Leikur dagsins