"vertu ánægð með þig ég er það" :)Erna Stefnisdóttir
Jáááá ég vissi ekkert hvað ég átti að skrifa í fyrirsögn.. þannig að ég tók bara Unnþór á þetta, leit aðeins í kringum mig og skrifaði það sem ég sá :) En þetta sem sagt stendur á litlu tréhjarta sem hangir á lampa á náttborðinu mínu, Kittan mín gaf mér einu sinni blómvönd með þessu hjarta á :) hehehe við áttum okkur tímabil þar sem við vorum duglegar í að gefa hvor annari blóm :) "Til þín vina mín bara grín" haha, það stóð á mínu hjarta til hennar :D hehehe good times ;)
Ég fékk að hitta Kittuna mína í svona góðar 15-20 mínútur eða svo á sunnudaginn :)
Ég sem sagt lét mig vanta á Lundaballið þannig að ég fékk ekki að eyða miklum tíma með henni.. en þetta dugði.. ég verð bara að fara að kíkja aftur í sveitina góðu við tækifæri :) Hún nebbla deildi því með mér að hún kæmi ekkert aftur til eyja fyrr en í bara Maí eða eikkað því hún fer út um jólin og eitthvað helv**** kjaftæði.. haha mér finnst það ekki nógu sniðugt :p
Annars er bara lítið að frétta, það er ógeðslega kalt úti!! Ég er ekki alveg að fíla það, alltaf þegar það byrjar að kólna þá óska ég þess að kraft gallarnir góðu vakni til lífsins og verði aftur töff... hversu þæginlegt var það bara, ég sakna þess allavega :)
Það er nóg að gera í skólanum, 3 próf í þessari viku :/ Eitt í dag og tvö á morgun! Það reddast :) Annars var ég að fatta það að ég þjáist af skólaleiða á háu stigi þessa dagana... ég einfaldlega er ekki að nenna þessu! Það er alveg örugglega bara útaf því að þetta er alveg að verða búið... ég verð allavega að hysja upp um mig brækurnar og klára þetta með stæl! Þýðir ekkert annað!
Svo er ég með eina nokkuð góða frétt.. Ég er hætt að reykja :) For good í þetta skiptið! Er ekkert búin að reykja síðan á föstudaginn og þetta bara gengur rosalega vel! Ég fæ mér bara tyggjó í staðinn og það virkar fínt! Þó að ég sé ekki búin að vera hætt lengi þá finnur maður strax mun á buddunni! Enda ekkert eðlilega dýrt að kaupa reykjur í dag! þannig að í gær þá leyfði ég mér að fara í lit og plokk og meirað segja keypti mér ilmvatn sem mig er búið að langa í síðan um jólin :D OG keypti mér nýjan hárlit sem mamma ætlar að klína í mig í dag :D já stelpur mínar... mæli með því að þið hættið að reykja... þá fyrst hefur maður efni á því að vera pæja ;) hehe
Awww Prins var að hoppa uppí til mín og er að biðja um kúr, ég get ekki sagt nei við þessa elsku.. bæjó !!! :)
Athugasemdir
2
Erla Ásmundsdóttir skrifar:
Hætta að reykja segirðu... veistu nei ég er ekki tilbúin í það, en vonadni kemur að því einn daginn. Þú ert hetja að hætta :)
01. október 2008 klukkan 19:00
4
Frikki H skrifar:
Mér fynnst frábært að þú skullir vera hætt að reykja, því það er hægara sægt en gert, eða svo hef ég heyrt
02. október 2008 klukkan 19:01
5
Kristín skrifar:
váááá hvað ég er stolt af þér ástin mín að hætta... maður ætti kannski bara að taka þig til fyrirmyndar og hætta líka.... stolt stolt:)
03. október 2008 klukkan 00:04
6
ElínEllan skrifar:
Þú ert hetja Erna!
Mig langar svo að hætta að reykja!
Ég ætti kannski að taka þig til fyrirmyndar :)
Flott nýja lúkkið á síðunna...ég er að fíla það!
Mig langar svo að hætta að reykja!
Ég ætti kannski að taka þig til fyrirmyndar :)
Flott nýja lúkkið á síðunna...ég er að fíla það!
03. október 2008 klukkan 12:12


geturru bætt upp Ballið með því að mæta á egilstaði á laugardaginn :) Ball þar :D