Litlu jólin komin...Erna Stefnisdóttir
Það er komið að þessu!!! Airwaves byrjaði í dag!! ;D
Við förum svo öll í borgina á morgun og þá bara hefst gamanið :D
Frekar leiðinlegt reyndar að missa af fyrsta kvöldinu sem var nebblilega freekar gott, en ég er búin að skoða þetta allt saman og allt sem er í kvöld getum við séð hina dagana... nema Ourlives! Sem mér persónulega finnst alveg gjörsamlega glatað... þeir hjálpuðu mér mikið yfir próflestri síðastliðinn maí og ég myndi alveg vilja bera þá augum :D eða hvað sem maður segir... haha
Við gistum sem sagt í Mánatúninu í glæsi íbúð og munum eflaust hafa það mjög kósý!!
Sæþór og Fannar taka gítara með sem veit bara á gott... Unnþór mætir.. jafnvel með gítar líka, hvur veit? Ég skal mæta með greiðu en tíminn verður bara að leiða það í ljós hvað hann Þorsteinn mætir með! :p
Svo mun auðvitað Láran mín mæta... með sína undurfögru rödd þannig að já... partýýýýý ;D jeij, mér líður eins og litlu barni með sleikjó á jólum..
Ég er farin að halda áfram að pakka.. Ciao!
Og gleðilega hátið þið Airwaves-farar þarna úti ;)
Athugasemdir
1
Lára klára skrifar:
Takk fyrir helgina Erna mín alltaf jafn gaman að fá þig í bæinn!! við og Airwaves er alltaf góð blanda ;) er farin að leggja fyrir ferð út á sjó til þín hehe ef ég legg 10 krónur fyrir á hverjum degi næstu daga þá kemst ég kannski næsta sumar ( geri auðvitað ráð fyrir smá gengishækkun ;) heheh Lovv you
20. október 2008 klukkan 23:24
2
Sindri skrifar:
Synd að maður hafi ekki hitt Ernuna sína :) En við bætum úr því næst :)
ps. Ég er á næturvöktum og ég heimta blogg daglega :)
ps. Ég er á næturvöktum og ég heimta blogg daglega :)
22. október 2008 klukkan 20:19

