Kuldaboli úti !!!Erna Stefnisdóttir

Hæhæ!

Jæja þá eru litlu jólin búin og þá er ég bara farin að bíða eftir stóru alvöru jólunum :) Ég er ekki að grínast en ég er alveg komin með fiðring í magann ég hlakka svo til jólanna... :D Ég elska þennan tíma mest af öllum! Það er allt eitthvað svo rómó og fallegt... góð lykt allsstaðar, ljós útum allt, jólalög í útvarpinu, allir í fjölskyldunni eru heima og allir vinirnir koma heim og bara ohh svo kósý eitthvað :D Það eru bara 2 mánuðir í þetta :)

Airwaves var rosalega vel heppnað! Góð bönd að spila og við náðum að sjá allt sem okkur langaði að sjá.. nema reyndar Esju í Listasafninu því að það hvellsprakk á bílnum mínum á Sæbrautinni þegar við vorum á leiðinni þangað!! Ohh bömmer... en sem betur fer var ég með fullan bíl af karlmönnum sem sáu um þetta fyrir mig, ég hefði bara panikkað þarna útí kanti hefði ég verið ein! En þetta hafðist á smástund þó svo að þetta hefði getað endað illa sökum þess að 2 ónefndir aðilar voru mjög fullir og ákváðu að sýna bílunum hvert þeir áttu að keyra og það munaði sko litlu að þeir keyrðu bara á þá!! En já, vonbrigði helgarinnar var að missa af Esju, þó svo að við "sáum" þá í Organ kvöldinu áður, þar var bara svo troðið að maður sá ekki neitt og naut þess ekki eins vel fyrir vikið... Listasafnið er að mínu mati náttla bara einn mesti snilldar tónleikastaður fyrir eins og þessa hátíð... riiiiisa salur, rosa flott sound og alveg nóg pláss!!

Ég gerði nú líka smá annað en bara að Airwave-ast þessa helgi en það var þó ekki mikið! Ég kíkti á Helgu Dóru mína sem er sko alveg að springa, prinsessan er væntanleg eftir bara 10 daga (ef hún kemur á réttum tíma) og allt er orðið tilbúið og svona :) Fullt af litlum sætum bleikum fötum útum allt og baðborð og bílstóll og ég veit ekki hvað, ekkert smá krúttlegt og lítið allt saman :)
Guð ég hlakka svo til að sjá skvísuna og fá að máta og verða stóra frænka :D:D:D:D Vona bara að allt gangi vel og svona... hef enga trú á öðru :D Helga var bara ótrúlega hress og hún er bara rosalega heppin með það hvað þessi meðganga er búin að ganga vel hjá henni! Núna er hún reyndar aðeins komin með í bakið en við skulum vona að það verði ekkert meira og alvarlegra...
Mér finnst bara svo skrítið að fara til Helgu og spjallið okkar er um börn og þess háttar, og næst þegar ég hitti hana þá hitti ég barnið hennar... mér finnst svo stutt síðan við vorum að leika okkur með dúkkur og barbie!! haha Shit hvað maður er að verða gamall ;)


Ég er nú bara að spá í að enda þessa færslu mína með mynd af mér og Helgu Dóru, þessi færsla átti að vera um Airwaves og eitthvað en nei.. þetta sýnir greinilega hvar hugur minn er núna, Hjá Helgu minni ;****
Ég er bara svo spennt að verða stóra frænka :D




Love you Helga mín ;*

Bið að heilsa ykkur í bili!!!
Bæjó!!

Athugasemdir

1
Kristín skrifar:
það var líka hitt mig:/
24. október 2008 klukkan 14:49
2
Erna skrifar:
hehe já ég veit kjáni... ég nennti nú ekki að fara að telja upp allt sem ég gerði, það væri ekkert skemmtileg lesning! Takk fyrir hittinginn ;)
24. október 2008 klukkan 16:17
3
Sindri skrifar:
:) hittir ekki mig :/ en ég vill fá annað blogg á morgun :) bara 4 vaktir eftir :)
24. október 2008 klukkan 21:18
4
ElínEllan skrifar:
Mig hlakkar ekkert smá til Jólanna líka.
Sá að það er komið jólaskraut í IKEA og ég veinaði af ánægu.
Ætla að setja upp ljós snemma til að lýsa upp skammdegið og gleyma krepputalinu ;)
26. október 2008 klukkan 17:41
5
Helga Dóra skrifar:
Awwwww...... æji litla rassgat
Stóru frænku hlutverkið er gífurlega mikilvægt:) Eins og ég var með þig, passaði að þú værir ekkert að fikta í dótinu mínu eða í dótinu hennar mömmu, máttir ekki fara yfir götu fyrr en ég sagði ok og sonna hehehehe en við skulum vona að þú verðir ekki jafn frek við litlu frænku og stóra frænka var við þig:) Fyndið hvað þetta snýst í hringi. það er sko ekki langt síðan að við vorum í barbie eða einhverju þess háttar.
Gaman að lesa bloggið þitt snúlla, við skiptum hvor aðra svakalegu máli, erum líka næstum því systur.
Elska þig úber mikið og hlakka til að sjá þig næst víjú
27. október 2008 klukkan 11:46
6
Bara að vera með
Þú hittir mig :)
27. október 2008 klukkan 21:41
7
hæjjjj snúlludúllurúllan mín :**** Já Erna mín þú ert bara að verða gömul :) en ekki ég :) heheheh.... jú ætli ég eldist ekki samferða þér :) en já það er gott að airwaves gekk vel og gott að vita að allt gengur vel hjá Helgu :) Bið ógó vel að heilsa henni :)
Kossar og knús úr sveitinni :***
Love love Kitta :****
05. nóvember 2008 klukkan 10:07

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Erna Stefnisdóttir
  • Stađur: Vestmannaeyjar!
  • Atvinna: Pizza 67
  • Um mig: Eyjapćja međ meiru!
  • Annađ: How u doing ?

Innskráningar kubbur

Atburđarteljari

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvađ gerir ţú í lífinu?

Leikur dagsins