Ég á litla sæta frænku :)Erna Stefnisdóttir

Hæhæ :)

Í fyrradag, sem sagt þann 5. nóvember klukkan ca. 00:30 þá kom lítil og aufga falleg prinsessa í heiminn sem ég get ekki beðið eftir að fá að knúsa :) Helga Dóra mín og Robbi eru orðin foreldrar :D Og Bína orðin amma og mamma mín orðin ömmusystir!! haha.. hvað er ég þá? frænka móður eða móðurfrænka :D og auðvitað stóóóra frænka :D híhíhí
En já það gekk allt alveg rosalega vel og mæðgum líður vel...
Það er meira að segja búið að skíra skvísuna og fékk hún það fallega nafn Lilja Rut Róbertsdóttir :) Ég get ekki annað en að láta fylgja með mynd af ofurdúllunni.




Ég gat ekki valið bara eina mynd til að setja hérna... Ohh hún er svo sæt.. ég gæti glápt á þessar myndir heilan dag, maður gleymir sér bara ;***

Annars er bara mjög lítið að frétta... skólinn er alveg að verða búinn... ég alveg get ekki beðið eftir að það klárist!! Hlakka bara til að byrja í prófunum! Ég er samt alveg pínu kvíðin því það er stúdentspróf í húfi þannig að maður verður að vera duglegur að læra :) Við erum búin að panta okkur búninga til að dimmitera í.. það eru bara 3 vikur í það, það verður geðveikt! Flottustu búningar ever :D

Svo bara styttist í jólin :) Ohh hvað ég hlakka til. Ég vil bara fá desember núna takk fyrir pent. Ég er að fara á tónleika með Frostrósunum í byrjun desember og held ég að það verði bara jólafílingur beint í æð :) Það verður alveg örugglega æði!

Svo er ég að spá í að skella mér í borg ótta og viðbjóðs (fallega borgin mín) annað hvort á föstudaginn eða laugardaginn. Ætla aðeins að fá að klípa í þessa einstaklega fallegu frænku mína og svo líka heimsækja fleira fólk og vesenast aðeins :)

Jæja þetta er komið gott... bið að heilsa ykkur ;*

Athugasemdir

1
Esther skrifar:
Innilega til lukk með þessa gullfallegu frænku. Hún er ekkert smá yndisleg ;) En þú kemur alveg til með að brillera í prófunum. Hafðu það alveg rosa gott og við mæðgin biðjum bara að heilsa héðan úr Áshamrinum :**
08. nóvember 2008 klukkan 20:45
2
Helga Dóra skrifar:
Hæ stóra frænka, en hvað þú bloggar fallega um frænku þína, hún er alveg yndisleg, þú átt nú eftir að falla enn meira fyrir henni þegar þú hittir hana in person;) En gaman að lesa um skvísuna, hlakka til að sjá þig, knús og kossar
kv. Helga og litla frænka sem bíður eflaust spennt að hitta stóru frænku:)
10. nóvember 2008 klukkan 18:28
3
Erna skrifar:
Það er ekki annað hægt en að skrifa falleg orð um þessa fallegu litlu krúsídúllu... haha ég trúi því sko að hún sé spennt að hitta mig... híhí hún hlýtur að iða... er hún búin að vera eitthvað óróleg?? :p Hlakka mest til að sjá ykkur ;***
12. nóvember 2008 klukkan 16:20
4
Helga Dóra skrifar:
Hún er sko búin að vera alger draumur, bara sefur. Ég sakna hennar á daginn því hún vaknar til að drekka og sofnar strax aftur, maður þarf bara ekkert að hafa fyrir henni:) Hlakka til að hitta þig snúllster
Kv Stóra og litla frænka
12. nóvember 2008 klukkan 17:01
5
ElínEllan skrifar:
Til hamingju með litlu frænku!
Hún er algert krútt :)
17. nóvember 2008 klukkan 11:04

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Erna Stefnisdóttir
  • Staður: Vestmannaeyjar!
  • Atvinna: Pizza 67
  • Um mig: Eyjapæja með meiru!
  • Annað: How u doing ?

Innskráningar kubbur

Atburðarteljari

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvað gerir þú í lífinu?

Leikur dagsins