MúsímúsErna Stefnisdóttir
Hæjjj :)
Alveg kominn tími á smá færslu... þó ég hafi ekkert rosalega mikið að segja! Vil ekki láta líða of langt á milli svona eins og sumir ;) haha
Ég fór til reykjavíkur á laugardagskvöld og kom aftur heim í gærkvöldi. Þetta var bara alveg einstaklega vel heppnuð ferð þó ég hafi ekki gert mikið af mér.. heimsótti fólkið mitt og þar á meðal fór ég til Helgu og Robba og hitti litlu frænku mína hana Lilju :) Hún er sko bara yndisleg og hún var alveg að fíla mig sko þó hún hafi grátið smá hjá mér fyrst.. hún var bara aðeins að stríða mér :) Svo bara urðum við svaka vinkonur og við vorum bara á spjallinu en ég skildi ekkert hvað hún var að segja mér samt.. hún var bara eitthvað að veifa höndum, örugglega einhverskonar barnatáknmál og svo kom stundum nokkurskonar hjal :) Hún er bara dúlla og er alveg einstaklega vel heppnuð og gengur bara vel hjá litlu fjölskyldunni :) Við gáfum skvísunni auðvitað nokkrar gjafir og ein af þeim var ótrúlega flottur órói á rúmið hennar og ég sver það að þetta er svo flott að mig langar í svona á mitt rúm! Það kemur ljós og munstur í loftið, hann spilar lög og líka hægt að velja róandi sjávarhljóð og svo eru tuskudýrafiskar sem snúast í hringi :D Bara skemmtilegt!
Já svo fyrir utan það að ég heimsótti litlu fjölskylduna þá hitti ég Kristínu mína og Andrann minn og svo heimsóttum við mamma restina af ættingjunum :) Ég var líka dugleg og verslaði mér aðeins og maður komst sko í jólafílinginn, allt í jólaskrauti og jólavörum :D ekki leiðinlegt!
Þetta er komið gott í bili... ætla að fara að reyna koma mér í ritgerðarfíling :) Ég verð að sýna ykkur hvað við frænkur erum sætar saman, hérna er mynd af mér að máta Lilju.. :)

Maður horfir bara dolfallin á hana því hún er svo falleg og yndisleg :) Finnst ykkur ég ekki bara taka mig vel út ?? :D
Bæjó!
Athugasemdir
2
Helga Dóra skrifar:
Hæ snúlla mín, ohh þið eruð bara sætar saman:) sakna þín svakalega litla snúll;)
22. nóvember 2008 klukkan 03:13


Ekkert smá sæt mynd af ykkur frænkum:) gott að hún hafi svo róast hjá þér:) Hefði verið leiðinlegt að hún hafði bara grátið út í eitt:)