Loksins kominn desember :)Erna Stefnisdóttir
Hæhæhæ allir :)
Já það er loksins kominn desember :) Rosalega er ég ánægð með það! Ég verð samt að viðurkenna að mér finnst alveg hrikalega stutt síðan síðustu jól voru, þetta er ekkert smá fljótt að líða! En það hefur alveg sína kosti og galla :D
Dimmiteringin er búin, hún var síðasta föstudag og það var alveg rosalega gaman. Búningarnir okkar náðu til Eyja á réttum tíma og hér kemur ein sæt mynd af okkur vitleysingunum :D
Sjáiði hvað við vorum fín :D
En já eins og ég sagði þá var þetta rosalega gaman og bara mjög vel heppnað.. ég verð að viðurkenna það að það var rosalega spes að vera eina edrú manneskjan en ég hefði samt sko ekki viljað hafa misst af þessu.. maður gerir þetta jú bara einu sinni :)
Við fórum svona um bæinn og vöktum nokkra kennara og kíktum í nokkur vel völd fyrirtæki. Það var rosalega gaman þegar við fórum uppá Sóla að heilsa uppá krakkana, við tókum fugladansinn með þeim og þau voru alveg alsæl með heimsóknina.. þó að nokkrir hafi reyndar farið að gráta :/
Núna er bara einn og hálfur kennsludagur eftir og svo hefjast prófin. Þau byrja nú ekki hjá mér fyrr en á mánudaginn og ég hlakka til að byrja, sérstaklega eftir daginn í dag þar sem að ég fékk að vita það að ég þarf ekki að taka lokaprófið í efnafræði því ég var með 8 í vetrareinkunn, en þá má maður sleppa lokaprófinu, ég er alveg alsæl með það :D Þannig að ég fer bara í 6 próf :)
Svo fer ég á jólahlaðborð á laugardaginn :D Ég held ég hafi bara aldrei farið á jólahlaðborð sveimérþá! Það verður gaman að prufa það :)
Það vill svo skemmtilega til að allir mínir uppáhalds strákar eiga afmæli á einum og sama deginum... í dag :D Til hamingju með afmælið elsku Friðrik, Andri og Sindri minn ;***
Jæja ég er farin í bað :) Bið að heilsa ykkur í bili!
P.s mér finnst þið sko ekki vera a standa ykkur í kommentunum... má ekki bæta úr því ??? ;)
Athugasemdir
Ég tel niður dagana þangað til þú kemur elskan mín... bara 15 dagar :D:D:D
(btw i miss you)

