KúkúkútjúErna Stefnisdóttir


Jú sæl :) Mig langar að henda inn eins og smá færslu þó ég hafi nú ekkert merkilegt að segja ykkur... en ég skal reyna að finna eitthvað skemmtilegt :D
Nú er ég hætt í Godthaab og komin á skólabekkinn aftur :) Það er bara rosalega gaman í skólanum hérna, ég verð að viðurkenna að ég bjóst ekki við því :) Þetta er allt að ganga upp loksins að setja saman stundatöfluna mína og ef að ég verð rosalega dugleg þá næ ég að útskrifast um jólin :) Er meirað segja að útskrifast með fullt af krökkum sem ég þekki :D Bjóst ekki við því heldur! Fórum meirað segja aðeins að byrja að ræða búningadót í gær, fjáröflun og útundan mér heyrði ég talað um útskriftarferð :D ekki leiðinlegt... en ekkert ákveðið... það er ekki ennþá búinn að vera útskriftarnema fundur og við erum ekki ennþá búin að opna sjoppuna :O En það kemur vonandi í vikunni....

Ef að maður á ekki eftir að fara á hausinn núna fyrir jól þá veit ég ekki hvað... ég er ein af þeim sem vil eiga geisladiska frekar en að ná í þá á netinu, enda er miklu skemmtilegra að styrkja tónlistarfólk og kaupa plötuna þeirra! Og það eru svooo margar plötur að fara að koma út að það er bara rugl :D Og það er byrjað!!! Esja og Mammút eru búin að gefa út plötu... og heeeellingur á leiðinni... t.d frá Kings of Leon, The Verve, Dikta, Lights on the highway, Jeff Who? og meirað segja fleiri sem ég er pottþétt að gleyma.. en já ef við tökum saman bara þessar plötur... og að ein kosti ca 2300 krónur þá er þetta samtals í kringum 17.000 kall!!! haha spáið í því! :D
Mér finnst að menntalingar eigi að fá styrk til að kaupa sér dót... hehe tónlistarstyrk! Neinei þetta reddast, maður verður bara að vera duglegur að vinna til að geta leyft sér að kaupa þetta allt saman :D Ef ekki, ef ég verð úber fátæk fram að jólum eða eitthvað.. þá allavega á ég ekki eftir að vera í erfiðleikum með að segja hvað mig langar í jólagjöf!! :D

En jæja þetta er ágætt í bili, þarf að fara að græja mig í skólann! Bið að heilsa ykkur ;*

R.I.PErna Stefnisdóttir


Í dag hefði Layne Staley, sá merki og fallegi maður, orðið 41. árs. Hann var söngvari í einni af mínum uppáhalds hljómsveitum, Alice In Chains.
Hann lést árið 2002 vegna of mikillar eiturlyfjaneyslu :/
Ég vildi bara nota tækifærið og heiðra minningu hans og "óska" honum til hamingju með daginn :D


Hvíldu í friði ;** 

En útí annað! Eigum við að ræða þennan leik í dag! og eigum við að ræða það að ég er greinilega að vinna hjá eina fyrirtækinu á Íslandi sem bannaði starfsfólkinu sínu að horfa á leikinn! Er það bara eðlilegt? Er það bara löglegt ef að útí það er farið ??? Ég meina við vorum að missa að atburði sem fer á spjöld sögunnar!! En nei... við þurftum að gjöra svo vel að láta það duga okkur að hlusta á leikinn í ÚTVARPINU!!! Shit hvað ég er spæld yfir þessu... En ég næ þó að horfa á það þegar við vinnum okkur inn gullið :D Já ég ætla sko bara að nota Secret á þetta... við fáum gullið!!! ÁFRAM ÍSLAND!!!

Annars eru bara rólegheit og sjónvarpsgláp framundan... mmm hvað það verður gott að sofa út í fyrramálið :D
Bið að heilsa í bili!

Hola amigosErna Stefnisdóttir


Jæja það er komið að því, ég hef loksins ákveðið að henda inn smá færslu hérna :) Búið að vera algjört bloggleysi
í sumar ég veit, ég bara hreinlega nennti ekki að blogga svo einfalt er það :)

Sumarið er búið að vera hrikalega skemmtilegt...
Fullt af skemmtilegum djömmum og mikið búið að bralla!
Goslokahátíðin var algjör snilld.. Tríkot meikuðu það ásamt Bigga í Gildrunni og það var aldeilis djammað af sér skóna þá helgi, mikil Stella drukkin og bara já helljarinnar fjör :)
Mærudagar á Húsavík þar sem var einnig semí ættarmót var alveg hrikalega gaman, ég og Fannsi keyrðum saman og það var eiginlega líka skemmtilegasti partur ferðarinnar! :D Þar hittum við svo ættingja sem ég hef ekki hitt í sirka 10 ár eða svo og það var að sjálfsögðu tekið á því... fórum í Ásbyrgi og að Dettifossi og fleira skemmtilegt!
Þjóðhátíðin var alveg svakalega vandræðaleg ;) Það var alveg svakalega gaman, enda ekki leiðinlegt að fá 13.000 manna afmælispartý :D Þó svo að vissir aðilar gleymdu afmælinu mínu þá var það alveg einstaklega vel heppnað og bara rosalega gaman :) Þessi Þjóðhátíð er held ég bara með þeim betri og ekkert mun toppa partýið sem var í VKB tjaldinu á mánudagsmorgun :D Getið skoðað vídjó úr því mikla partýi á www.youtube.com , mynbandið heitir einfaldlega
gítarpartý í VKB tjaldinu :D

Hérna er Gyðan með skiltið góða... en það var nú samt búið til flottara :D

Ég, Gyða og Lára á brennunni að fagna því að aðeins nokkur ár voru síðan ég fæddist :D

Straight pride
var haldið hegina eftir Þjóðhátíð, en það er útilega sem er haldin í Kjós hjá mjög svo stórum og skemmtilegum vinahóp. Málið er að vera viss um kynhneigð sína og gefa skít í Gay pride :D Enginn mórall samt ;) Þar var brekkusöngur, blys og brenna ásamt gítarspili, tjöldum og almennri skemmtun :D Þetta verður árlegur viðburður og ætla ég sko ekki að láta mig vanta að ári liðnu!
Vonbrigði sumarsins er samt að hafa ekki farið á Hróaskeldu :( Hefði sko viljað sjá allavega Radiohead og Kings of Leon!!! :/ En ég er að spá í að finna mér bara eitthvað gott og stórt tún, kaupa mér stóran og flottan ghettoblaster, tjalda og drekka mig fulla meðan ég hlusta á Radiohead, Kings of Leon og fleira vel valið... dilla mér svo og þá á mér örugglega eftir að líða bara eins og á Hróaskeldu ;D haha.. eruði með?

Svo núna er bara skólinn að byrja sem þýðir að það styttist í húfuna góðu! :D
Og þar hafiði sumarið mitt.. reyndar í stórum dráttum en það er vonandi betra en enginn dráttur ;) hahaha
Ég ætla að láta þetta duga í bili bara, en Sindri minn ég lofa að það verður sko ekki svona mjög langt í næsta
blogg ;)

Adíós, Ernie ;)

Hilsen frá VestmannaeyjumErna Stefnisdóttir

Jú góðan daginn! Ég er alveg hrikalega latur bloggari og ég veit það vel Sindri ;) En ég lofaði bloggi fyrir helgina og hér kemur það ! :D

Nú er ég bara flutt til Eyja og líkar það alveg rosalega vel :) Alveg hrikalega gott að vera komin heim, síðustu dagar hafa samt ekki verið neitt til þess að hrópa húrra fyrir, hafa verið frekar erfiðir ef að ég á að segja alveg eins og er.
Hann Venni okkar kvaddi þennan heim á mánudaginn og söknum við hans alveg hrikalega mikið :( Hann var mér eins og bróðir þessi hundur og ég get engan veginn líst því hvað mér þykir vænt um hann, hann var svo einstakur og svo mikill karakter. Við verðum bara að vera sterk og hugsa fallega til hans vitandi það að honum líður miklu betur núna og er í góðum höndum hjá afa :)

Ég er byrjuð að vinna í Godthaab og það er bara gott að vera komin þangað aftur. Mér líkar það alltaf jafn vel, enda æðislegt fólk að vinna þarna og skemmtilegur mórall..
Ég er búin að fá einkunnirnar mínar og ég bara náði öllu :D 28 einingum landað!!! Mikið er ég ánægð og stolt af sjálfri mér! Svo byrjar sumarskólinn í næstu viku og svo fer þetta bara alveg að taka enda :D Er búin að skrá mig í FÍV og sagði konunni það að þetta yrði mín útskriftarönn.... mikið var það gaman.

Ég hlakka rosalega til að horfa á júróvisjón á morgun, alveg rosalega skemmtilegt að við komumst loksins áfram í aðalkeppnina, þetta var rosalega flott hjá þeim júróvisjónförunum okkar og þau mega alveg vera stolt.

Svo á mánudaginn þá byrja ég í Óvissubúðum sem er svona wannabe BootCamp :) Það verður örugglega hræðilega erfitt og gaman :) Maður verður nú að halda áfram fyrst að maður var að byrja á þessu líkamsræktar rugli ;) hehe...
Já... þetta er svona það helsta sem er að frétta hjá mér þessa dagana!
Ég og Fannar erum alveg gjörsamlega hooked á upptökum af þættinum Bandið hans Bubba... við fáum bara ekki nóg af honum Eyþóri. Hann er bara rugl þessi drengur og mikið hlakka ég til þegar hann fer að gera skemmtilega hluti, gefa út efni og spila hér og þar. Það er náttla bara rugl þegar hann tekur Grasagarðinn úr Jesus Christ Superstar, þvílíkur barki, ég hef aldrei heyrt neinn öskra svona!! Og svo er frumsamda lagið hans alveg gjörsamlega geðveikt og bara lög gerast ekki mikið meira töff... maður mun allavega ekki sjá eftir því að fjárfesta í plötu frá honum Eyþóri!!

Jæja ég er farin, bið að heilsa!

4dagar eftir í borginni!Erna Stefnisdóttir

Í gær var síðasti vinnudagurinn minn á Nings :/ Fáránlega skrítið og mjög erfitt að kveðja allt þetta yndislega fólk. Þessi staður hefur náttla verið bara mitt annað heimili í þau tvö ár sem ég hef búið hérna í Reykjavík. En ég á nú samt alltaf eftir að kíkja á þau þegar ég kem í bæinn, og verð alltaf í sambandi við þessar yndislegu vinkonur mínar sem ég hef eignast með því að vinna þarna :)

Ég er búin í 3 prófum og á bara 2 eftir :D Ég get ekki beðið eftir að klára prófin.. fer í íslensku próf á morgun og ég er svo stressuð fyrir það að ég byrjaði að læra fyrir það á föstudaginn... það er ekki líkt mér þar sem að ég er svona "byrja að læra deginum fyrir próf" manneskja... vona að ég rústi þessu.. og svo er það stjórnmálafræði á fimmtudaginn! Pólitíkusinn ég er að fara að láta ljós sitt skína :D
EEEn svo á föstudaginn þá er það bara jólfurinn góði og ég flutt heim :D
Þannig að núna svona til hliðar með póflestrinum þá er ég að pakka niður og henda drasli og svona... svo þurfum við að fara að fá bíl til að fara með dót á haugana...
Vantar þig sófa eða hilla eða eitthvað slíkt ? Jafnvel rúm? come and get it :D

Bíllinn minn ákvað að vera töff um daginn og hljóma eins og eldgamall kaggi, pústið er eitthvað að tjá sig þessa dagana... þannig að ég varð að fara að kaupa nýtt púst... og ég verð að segja það að þegar ég labbaði í burtu frá verkstæðinu með púst-bitana í sitthvorri hendi, þetta var alveg eins og í myndinni Mask þegar grímuklæddi Stanley brýst inná verkstæðið hjá lúðunum þarna til að tékka á bílnum sínum, mér leið pínu þannig :D
En já þar sem að pústið mitt ákvað að vera með stæla þá þarf bíllinn minn að vera með ógeðslega töff endurskoðunarmiða þangað til að pabbi setur nýja pústið undir bílinn...
Ég ætla að fara að koma mér aftur í lærdóm... þýðir ekkert hangs! Veriði sæl ;)

Allt að taka enda!Erna Stefnisdóttir

Jæja þá var síðasti skóladagurinn í dag og næst eru það bara prófin!
Ég fer í fyrsta prófið á mánudaginn og síðasta 15. maí þannig að ég er að fara að loka mig af þess á milli.... fyrir utan síðustu vinnuhelgina á Nings þar næstu helgi!
úff ég verð bara að segja að ég er ekki tilbúin í þetta allt saman! Mér finnst tíminn búinn að fljúga frá mér... maður verður fertugur áður en maður veit af!!! ;D

En já þannig að næst á dagskrá er að rústa þessum blessuðum lokaprófum... og svo bara flutningar... ég er eitthvað voðalega motional þessa dagana.. kveð FB með tár í augum verð ég að segja... ég á eftir að sakna hans! Mér finnst ég búin að vera svo sjálfstæð og sterk, labbaði inní þennan skóla og þekkti engan, svo labba ég í burtu frá honum og fullt af vinum, frábærum kennurum og bara mjög góðum skóla!
Ég verð nú reyndar líklegast í sumarskóla þaðan þannig að ég er ekki alfarin! Múhaha! :D

Lengra ætla ég ekki að hafa þetta í bili, en ég mun nú alveg ábyggilega henda inn línum hérna í próflestrinum... maður gerir nú mikið af því að hanga í tölvunni þegar maður verður að vera að læra... hehehe..

Ég setti nýja mynd af mér hérna til hliðar, ákvað að taka Jeff minn frá í bili... en þetta eru sem sagt nýju gleraugun mín :) Sem ég er mega ánægð með, er ég ekki algjör pæja?? ;) hehe

Sælar elskurnar mínar!Erna Stefnisdóttir

Ég ætla nú ekkert að fara að koma með neina svaka bloggfærslu, langaði bara  svona aðeins að láta heyra í mér! :)

af mér er allt fínt að frétta! Fór til eyja síðustu helgi, eins og ég er farin að gera allar fríhelgar mínar liggur við frá áramótum, og það var geggjað gaman! Var að vinna föstudag og laugardag í Godthaab og er komin með vinnu þar í sumar :D Svo kom Þórdís mín í land og við tókum heldur betur á því á laugardagskvöldið!
Hún Guðríður okkar bauð okkur í 20 afmælið sitt og við fórum að sjalfsögðu með partýhattana á dansiball með Tríkot :D Þetta var geggjað skemmtilegt kvöldallave,ga og mikið hlegið!!! :D Svolleis á það að vera!

Svo eru Fannar og Þórdís búin að vera í bænum alla þessa viku, fóru frá mér í dag :/ ég er ekki alveg sátt við það, en það eru nú bara mánuður og 3 dagar í að ég flytji aftur á eyjuna mína fögru :D
Ég og Fannar fórum á skauta í gær, við erum sko sannar ísprinsessur! gátum bæði snúið okkur í hring og skautað á einni löpp! haha geri aðrir betur ;)
Já erum búin að gera margt skemmtilegt í þessari viku, fórum út að borða, fórum heldur betur í bíó og svona ýmislegt! Það var mega gaman að hafa ykkur ;***

Í kvöld eru gamlir vinnufélagar sem ég var að vinna með á Reyðarfirði með hitting á Players og svo er austfirðingaball þar í kvöld líka... væri gaman að hitta á allt þetta léttgeggjaða fólk! Ég ætla aðeins að sjá til hvort ég kíki... er auðvitað að vinna í kvöld og líka í fyrramálið :P

Mér finnst þetta komið gott í bili.. átti nú ekkert að enda sem langt blogg... ég er að fara að koma mér í ræktina og svo ætla ég að sleikja sólina í heitu pottunum og jarðböðunum eftir á :D mmmmm.... Og svo er það Ningsarinn!
Ert þú búinn að skoða nýja matseðilinn?? ;) Tékk it!

Allt það sem sekkur í kaf, flýtur oftast upp á endanum!Erna Stefnisdóttir

Þessi fallegu orð voru í strumpapáskaegginu mínu... magnaður andsk**** :)

Þetta blogg er fyrir þig Sindri minn, fyrst ég gef þér tilgang í lífinu ;) hehe

Nú eru páskarnir liðnir og restin af skólanum byrjuð... það eru aðeins 22 kennsludagar eftir :) Jeij sem þýðir að það er alveg að koma sumarfrí! Sem þýðir reyndar sumarskóli fyrir mig en so what! ég vil sumar og hlýju og fá að hengja úlpuna mína inní skáp í svona nokkra daga allavega ;)
Páskarnir voru rosalega fínir, ég var að vinna í Godthaab allan tímann en gaf mér samt tíma til að djamma með brósa mínum og nokkrum vel völdum á laugardagskvöldinu, það var alveg rosalega gaman og vorum við systkinin að fara á kostum :D
Ég ætlaði mér að vera rosalega dugleg að læra í páskafríinu en það fauk útum gluggan fyrst ég þurfti að vinna... hehe, maður finnur alltaf einhverja ástæðu til þess að láta lærdóminn sitja á hakanum það er bara þannig!
Svo framundan er bara skóli... ræktin... vinna... og vonandi eitthvað skemmtilegt líka! Ég var svo dugleg að selja tryggingar í vís í gær að ég fékk gjafabréf uppá 7.500 krónur í smáralindinni og ég er svona að velta því fyrir mér hvort það sé ekki tilvalið að skella sér þangað núna að kaupa sér eitthvað fallegt... :D

Spurningin er svo bara hvað maður á að gera af sér á kvöldinu, Svenni minn er að halda uppá afmæli en bróðir minn er líka að koma í kvöld því fíbblið er að fara að skella sér til Tyrklands á morgun... pff!! Hver vill Tyrkland þegar maður hefur sumaryl og hlýju hér..... NOT ;) En spurning hvort maður slær tvær flugur í einu höggi og tekur hann bara með í afmæli... ég á eftir að bera þetta undir hann en ef ég þekki hann rétt þá fer kvöldið annað hvort í bíóferð eða vídjógláp :) sem er svo sem ekkert verra sko.
Ég var að tala við hann Björgvin í FÍV og var að bera undir hann námsferil minn og solleis og athuga hvort að það gangi ekki að ég komi í skólann og fái allt metið og svona, stefnan er jú að fá húfuna góðu um jólin.. hann sagði að þetta væri allt saman sjálfsagt mál, hann myndi allavega lofa mér því að það yrði ekki fullt í skólann :D hahahah, þannig að ég er bara að fara að setjast á skólabekk á eyjunni fögru og segja bless við FB að sinni.... eða ekkert að sinni.. býst ekki við því að ég taki stúdentinn aftur ;) hehe

Jæja ég er hreinlega að spá í að skella mér í stærsta lim landsins og athuga hvort að hann hafi ekki eitthvað fallegt að gefa mér ;)
Bið að heilsa ykkur í bili...
Ernie

aaaaalveg að koma páskafrí :) :)Erna Stefnisdóttir

Jæja þá, ég skal blogga fyrir ykkur gott fólk :)

Það hefur margt drifið á daga mína síðan ég skrifaði síðast..
Það er búið að vera mikið að gera í skólanum og allir að henda á mann próf og verkefni og þannig en maður kemst nú alltaf yfir þetta á endanum. Í síðustu viku voru Sæludagar, þá var bara kennt  á mánudag og fyrir hádegi á þriðjudag og svo bara chill og skemmtilegir hópar og svoleiðis fjör. Það var eiginlega allt fullt þegar ég var að velja mér hópa til að fara í þannig að ég skellti mér bara á O.C marathon... það var ágætt :) Aldrei leiðinlegt að horfa á Seth Cohen minn :) Svo skellti ég mér á Draugasetrið á Stokkseyri!! Magnaður andsk**** !!! Mér var alveg íllt í hálsinum þegar ég kom út! Og ég sem hafði enga trú á þessu!! Það er alveg bókað mál að ég er að fara að taka Fannar með þangað einhverndaginn! Það verð ég að sjá!!! Og Þórdísi!! :D
Þið sem vitið eitthvað um þennan stað, ekki kjafta í komment eða neitt!!! :)
Svo var bara frí í skólanum á fimmtudag og föstudag vegna árshátíðar sem ég let ekki sjá mig á ...  ;) Finnst maður vera aðeins of gamall fyrir þannig...

Ég skellti mér á miðvikudskvöldinu í síðustu viku til Erlu minnar í Keflavík City og var hjá henni þangað til á föstudagsmorgun... þar var stuð og fjör :) Erla var að sjá um Pub quiz á Paddy's á fimmtudagskvöld og mikið hrikalega er það skemmtilegt!! ég verð sko að taka þátt aftur, The Green Lightning stóð sig með ágætum!!! :D
Á föstudeginum skellti ég mér svo til eyja þar sem ég ætlaði að hafa það gott með fjölskyldunni og slappa af og læra... ég get sagt ykkur að hvorugt var gert!!! :D hehe... ég var bara dregin á loðnuvaktir og vann af mér rassgatið!! ég er ennþá með harðsperrur í höndunum!! :D En þetta var samt stuð og maður fékk alveg vertíðarfílinginn og ég vildi eiginlega bara ekkert fara aftur í borgina.. var komin með dollara merki í augun ;) heheh

Í þessari viku byrjaði ég svo á námskeiði í Hreyfingu og þetta er alveg mega gaman! :D Er 3svar í viku klukkan 06:20 á morgnanna og þetta er sko bara hressandi! Svo ætlum við Kristín að vera duglegar að mæta í aukatíma þegar maður hefur tíma, það er bara harkan! Skil ekki afhverju ég var ekki löngu búin að drulla mér af stað í ræktina og stuðið :) Ekki veitir af :D haha
Í staðinn fyrir að segja að ég ætli að koma mér í kjólinn fyrir jólin þá segi ég bara...  í gallann fyrir sjallann :D eða... já mér bara dettur ekkert merkilegt í hug :D
Svo er bara alveg að koma páskafrí!! Ég get ekki beðið, fer til eyja eftir 4 daga :D:D Ég er orðin svo hrikalega heimakær að ég veit ekki hvað er í gangi... ég vil bara vera hjá fólkinu mínu og get ekki beðið eftir að flytja heim til Eyja :D Ég sem hélt að ég vildi aldrei aftur flytja þangað... svona er lífið hverfult :D

Ohh það er kominn svo mikill sumarfílingur í mann, hér er glampandi sól og sést varla lengur í snjó.. maður verður eitthvað svo hress og kátur á svona degi :) Sumarið verður svo mikið æði... það er alltaf gaman á eyjunni fögru á sumrin :)
Jæja þetta er alveg orðið fínt held ég bara...
Kveðja... Ernan sem er alltof löt við að blogga!

Eyjan fagraErna Stefnisdóttir


Jæja ég ætla að verða að óskum ykkar og henda inn nokkrum línum! :)
Ég er stödd í Vestmannaeyjum eins og titill bloggsins gefur til kynna og er það bara mjög notarlegt eins og alltaf :) Er reyndar að fara á eftir en það er seinnitíma vandamál! :)
Þessi helgi er búin að vera mjög nice, kom á föstudag og um kvöldið eldaði mamma uppáhaldið mitt, bjúgu með uppstúf ;D mmmm!
Í gærmorgun fórum við svo öll í vinnu klukkan 7, ég skellti mér bara í fiskinn líka i staðinn fyrir að hanga heima og sofa :p Það var fínt að komast aðeins í slorið, hitta fólkið og pakka 5 lbs.. híhí það er svo gaman :D
Í gærkvöldið horfðum við svo bara á júróvisjón eins og svo margir aðrir og ég verð að segja að ég er mjög sátt við úrslitin! Mjög fegin að Hey, hey, hey, we say ho, ho, ho vann ekki! Mér finnst það svo hallærislegt og svo líka bara getur þessi stelpa engan veginn sungið :/ Lagið er alveg pínu katsí ég verð að viðurkenna það en atriðið mjög hallærislegt og þau hefðu örugglega gert skandal þarna úti svipað og Silvía Nótt gerði og þar af leiðandi myndum við örugglega ekki einu sinni komast áfram á úrslitkvöldi keppninnar! Ég veit allavega að Friðri Ómar og Regína eiga eftir að verða þjóðinni til sóma og vona að við komust langt í þetta skiptið, þetta er alveg svona júróvisjónlegt lag :) Ee eeen segjum við það ekki alltaf ?? ;)

Ég var aldeilis að missa af miklu í bænum þessa helgina, Kristín er 25 ára í dag, Til hamingju með það elskan mín ;****, og hélt hún uppá það í gær og frétti ég að það hefði verið mega fjör, enda mega skemmtilegt fólk þar á ferð :D Vildi að ég hefði verið þar.. svo er hún Kolla líka 20 í dag, til hamingju með það ;*, og hún hélt líka uppá það í gær og þar hefur eflaust verið mikið fjör líka :)
En já ég ákvað að slappa frekar af og koma í mömmukot :D Sé ekki eftir því ef ég á að segja eins og er...

uhmmm... Er að spá í að læra smá áður en ég fer í herjólf svo að ég þurfi ekki að læra í kvöld :) Þarf nú að hitta hana Kristínu mína áður en hún kveður borgina og flýr þvert yfir landið :/
Ciao

Prófíll

  • Nafn: Erna Stefnisdóttir
  • Staður: Vestmannaeyjar!
  • Atvinna: Pizza 67
  • Um mig: Eyjapæja með meiru!
  • Annað: How u doing ?

Innskráningar kubbur

Atburðarteljari

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvað gerir þú í lífinu?

Leikur dagsins