Ég endurtek; Snáfaðu!!! ;)Erna Stefnisdóttir

Jæja þá er ég komin aftur í bæinn eftir alveg hreint yndislega Heimferð (þó svo að ég hafi þurft að eyða 5 tímum í Herjólfi til að komast þangað, ojjjjj) og er alveg endurnærð og full tilhlökkunar til sumarsins verð ég að segja :)
Þannig er mál með vexti að ungfrúin góða ætlar að kveðja borgina að sinni og flytja heim á Eyjuna fögru í maí og ég eiginlega bara get ekki beðið :) Mikið verður gaman að geta leikið við hundana, brósa minn, mömmu og pabba og auðvitað alla hina á hverjum degi :D Þó ég leiki ekki mikið kannski við mömmu og pabba en jú... í þetta skiptið ætla ég að kjósa að kalla það "að leika" :D haha En já, ég sem sagt nenni ekki að leita mér að nýrri íbúð til að leigja og langar líka bara að spara mér peninginn á meðan ég get :) Svo ætla ég bara að sjá til hvort ég komi aftur í bæinn í haust eða hvort ég verði bara áfram á Eyjunni minni, kannski verð ég komin með ógeð eeeeen ég býst ekki við því :D

Útí annað! Ég fór í leikhús á fimmtudaginn á verkið Ivanov, ég veit ekki hvað ég á að segja um það... erfitt að lýsa því en allavega þá er ég svo að fara að sjá Brúðgumann í bíó í kvöld, en fyrir þá sem ekki vita þá er sú mynd sem sagt Nútímafærsla á leikritinu! Hlakka til að sjá myndina því þá kannski skil ég leikritið betur :)
Annars hef ég ekkert merkilegt að segja ykkur... ritgerðasmíð og próf framundan... brósi minn og Kristín koma um helgina þannig að eins og alltaf þá er alveg nóg að gera :D

Mig langar í hnéhá gúmmístígvel, helst með blómum á og STIGA sleða :D :D :D
Mæli með því að þið fjárfestið í slíku!
Ciao

Snáfaðu!!Erna Stefnisdóttir

Heil og sæl öllsömul!! Váf hvað er langt síðan ég hef verið hér...

Nenni nú ekki að fara að koma með skýrslu frá því ég skrifaði síðast...
Síðasta helgi var bara snilldin ein. Fór í Sumarbústað með Lárunni minn, Magneu og Ólöfu og þessi helgi fer sko seint úr minni mans! Þetta var sjúklega gaman. Vorum þarna vel valinn hópur, eða 25 manns, í risa"villu"bústað hjá Apavatni, þar sem er poolborð, arineldur, einhver 6 herbergi, klósett básar og bara já nefndu það!!! Þessi bústaður er sem sagt að ég held samkomuhús ég held það hljóti að vera!
En já þetta var hin helljarinnar skemmtun!
Það var mikið drukkið, sungið og glamrað á gítar, olíuborið fólk, sjálflýsandi smokkaskemmtun, skiptinemar, almennt drama, drykkjuleikir, dýrindis matur, fólk hangandi í súlum, fullt af tungumálum í gangi, slúður og kerlingavæl, hösstl, tilraun til hösstls, klósettæla, og svo mætti lengi telja!!! Og svo má ekki gleyma orði helgarinnar að mínu mati, Snáfaðu!!!
haha já pínu einkahúmor en you just had to be there!!! :D
Svo á sunnudeginum þegar leið lá í bæinn aftur þá var sko sagan ekki búin. Okkur stelpunum sem ferðuðumst saman var boðið í bollukaffi á sveitabæinn hennar Ólafar þar sem bænda foreldrar hennar búa rétt fyrir utan Mosfellsbæ og þar fór ég í fjós, sá þá akkurat Belju vera að bera, já það er að fæða, það var ekkert smá skrítið að sjá þarna risa gaur koma úr greyið beljunni, ég snerti hann þegar hann var svona sirka 10 mínútna gamall :D Hann var þakinn slími og almennum viðbjóði!! haha Svo fékk ég að tosa í spena svo úr kom mjólk og ég fékk einnig að smakka beljumjólk!! Þetta var rosalega skemmtilegur dagur og aldeilis viðburðaríkur :D

Ég þakka bara kærlega fyrir fráááábæra helgi og gaman að kynnast svona mörgu frábæru fólki!! Vona svo innilega að þetta verði sko endurtekið!
Svo núna næstu helgi er stefnan tekin á Fögru Eyjuna mína þar sem ég ætla að knúsast í fjölskyldunni minni :D
Ætla mér ekkert að hafa þetta lengra í bili,veriði sæl :)

AhhhErna Stefnisdóttir

Nú er allt loksins að falla aftur í eðlilegt horf! Nings og Vís byrjað aftur á fullu og skólinn auðvitað kominn á fullt! Það verður mikið að gera þessa önn og verð ég að vera duleg deppa svo að ég nái markmiðinu að fá fínu húfuna um jólin :)

Mamma, pabbi, Helga og Bína eru komin heim eftir vel heppnaða Tenerife-ferð og eru þau brún og sælleg í öllum þessum snjó! Kræst hvað það er mikill snjór! Ég festist liggur við á eigin bílastæði og þarf að skafa snjóinn af bílnum með öllum líkamanum en næ samt ekki öllu af!! hehe... þarf að fara að fjárfesta í kúst með helljarinnar skafti!

Síðustu helgi fórum við stelpurnar að sjá Jesus Christ Superstar. Byrjuðum kvöldið á að fara út að borða á Tapas. Alveg rosalega góður matur þó að ég vilji vara fólk við að kartöflusalatið er frekar sterkt! hehe, en samt mjög gott!!
Jesús var rosalega flott sýning! Ég bjóst nú ekki við öðru með þessa merku menn í aðalhlutverki og stóðu þeir sig mjög vel og mér finnst alveg merkilegt hvað þeir syngja vel, líka þegar þeir eru í svona söngleikjafíling! Rosalega færir hljóðfæraleikarar spiluðu undir og fannst mér þetta bara rosalega fín sýning í alla staði! Er allavega ekki sammála gagnrýnendum borgarinnar, þó að það sé satt að Krummi féll pínulítið í skuggann af Jenna en samt eiginlega ekki! :)
Svo fórum við í innflutningspartý hjá ungum manni sem ég kýs að kalla Andrés Önd eftir það kvöld! haha.

Svo að já nú er Kristín mín farin aftur í fjörðinn fagra en hún fær ekki að stoppa lengi þar! :) Ég vil bara þakka henni fyrir góðar stundir, mikið hrikalega hefði ég verið einmanna ef hún hefði ekki komið til mín! Ég kann ekki að vera ein heima!! haha

En það getur verið að maður þurfi að fara að flytja úr Gyðufellinu góða, það kom fjölskylda að skoða íbúðina í fyrradag sem hefur áhuga á að kaupa hana. Þeim leist vel á þannig að ég býst við því að núna séu þau að skjóta tilboðum í allar áttir og þetta hlýtur að koma í ljós á næstu dögum bara... spurning hvað maður gerir þá ?
Maður þarf að fara að skoða þetta eikkað... leigumarkaðurinn er orðin svo rosalega dýr að það hálfa væri nóg, þetta er búið að hækka helling síðan við fengum þessa íbúð, þessi er ekki ódýr en samt það ódýrasta sem við fundum á þeim tíma!!
Kemur í ljós... :/

Jæja lærdómurinn bíður mín!
Munið, Jesús er kúl!!
Ernie ;)

2008!Erna Stefnisdóttir


Heil og sæl og Gleðilegt nýtt ár :)
Árið 2008 er búið að heilsa okkur og ég verð bara að segja að þetta ár leggst bara rosalega vel í mig, ég held og vona að þetta verði gott ár :)

Jólafríið var yndislegt í faðmi fjölskyldunnar og gerði ég mikið af því að liggja bara í leti og slappa af, þó svo að ég hafi nú tekið eins og tvö skemmtileg djömm og spilakvöld og fleira skemmtilegt. Ég fékk margt fallegt og flott í jólagjöf og er bara mjög ánægð.
 
Kristín mín Björns kom til mín 4 jan og verður hjá mér þangað til eftir næstu helgi, mikið er ég ánægð að hún kom til mín því annars væri ég pínulítið einmanna því Helga er auðvitað útá Tenerife ásamt Bínu og foreldrum mínum :) Þannig að það er mjög fínt að hafa Kristínu og erum við búin að bralla margt skemmtilegt og eigum eftir að gera margt skemmtilegt áður en hún fer :D

Mamma mín varð fertug í dag! (7. jan, ég er aðeins of sein að skrifa þetta) og vil ég óska henni innilega til hamingju ;** Mamma fékk að ráða ferðinni í dag og þau fóru í svaka skemmtilegan dýragarð og þegar ég heyrði í henni í kvöld voru þau að fara á eitthvað dýrindis steikhús að éta á sig gat og eiga góða kvöldstund :)

Skólinn byrjar á fimmtudaginn og ég er bara með ágætis stundatöflu, ætla samt að reyna að bæta inní einu fagi í viðbót til að fylla uppí götin og líka bara til að reyna að klára þetta sem fyrst! Fer í töflubreytingu á miðvikudag og vona að það gangi upp :)

Skrifa meira í vikunni!

Ernie :p

Nýtt ár nálgast!Erna Stefnisdóttir

Já krakkar mínir senn er árið 2007 á enda og 2008 mun heilsa okkur.
Kristín mín Björns skoraði á mig að gera upp árið hér á blogginu og ætla ég að reyna að gera það.

Ákvörðun ársins: Það er svo sem engin ein sem stendur uppúr en mér fannst sú ákvörðun að við Helga ákváðum að búa saman rosalega góð. Ég er líka mikið fegin að hafa ákveðið að fara með frænkum mínum til Rhodos því að ég hefði ekki viljað sleppa þeirri ferð og auðvitað var líka mega gott að ég ákvað að fara aftur á Hróaskeldu. En jú, kannski ákvörðunin um að fara aftur í skóla hafi verið pínku betri.

Sigur ársins: Það er líklegast bara að hafa náð báðum önnunum í skólanum. Maður getur alveg látið hvað sem er ganga upp ef maður bara vill það :)

Niðursveifla ársins: Það var í lok apríl og byrjun maí. Það var engan veginn góður tími og ég var langt niðri. Þeir sem þekkja mig vel vita hvað ég er að tala um en ég ætla ekkert að vera að skrifa um það hér.

Dagur ársins: 2. ágúst er náttla góður dagur á hverju ári... nema að maður eldist alltaf eftir hann.. á þessu ári varð ég 18 og fjögra :) svo fannst mér 07.07.07 töff dagur þar sem 7 er happatalan mín, þá var ég á Hróaskeldu og leiddist ekki.

Djamm ársins: Hróaskelda var skemmtilegt djamm þó við drukkum heldur minna en í fyrra sökum drullu! :) Innflutningspartyið mitt og Helgu var MEGA fjör oooooog svo eru líka mörg mjög góð sem ég man ekki núna :) hehe

Söknuður ársins: Mér finnst svakalega erfitt að vera svona í burtu frá fjölskyldunni minni og ég sakna þeirra alltaf mikið þegar ég er í bænum! Svo er það auðvitað hún Kristín mín Björns og Kittan.

Ferðalag ársins: Hróaskelda og Rhodos. Svo fór ég í Roadtrip með henni Kristínu þar sem við keyrðum austur á Seyðisfjörð og það var mega fjör, sungum mikið og spjölluðum og sýndum hvor annari mis skemmtilega tónlist hehe. Svo fór ég líka í Roadtrip með Kittu í febrúar á Akureyri og það var helvíti gaman líka, vorum kallaðar pysjur af vissum aðilum eftir það.

Ánægja ársins: Ég verð alltaf mikið glöð þegar ég er að fara heim yfir helgi að hitta fjölskylduna. Svo var mjög margt annað sem gerði mig ánægða. Ég eignaðist líka nýjan fjölskyldumeðlim, mamma og pabbi fengu sér Prins sæta svo að nú eru hundarnir okkar 2.

Kaup ársins: hmm... ég keypti mér fartölvu... svo bara eikkað svona smádót, föt og annað sem skiptir svo sem engu máli.

Sjokk ársins: Það gerðist ekkert það hræðilegt á þessu ári. Ég missti engan nákominn mér eða neitt þannig. Mér fannst erfitt að heyra að Kitta mín missti góða vinkonu sína til himna.

Biturleiki ársins: Ég er ekki viss. Ég komst að því að Einn ákveðinn aðili var ekki sá sem ég hélt að hann væri og mér fannst mjög erfitt að sætta mig við það en allt er nú í góðu í dag. Guð ég man ekki meir

Kona ársins: Móðir mín er efst í huga mér, hún er mér svo kær ;*
Helga Dóra á þetta líka skilið.

Maður ársins: Ég vil kjósa hann Andra minn, hann er hetja. Lenti í alvarlegu mótorhjólaslysi en lét það sko ekki buga sig.  Hann reif sig uppúr því á no time og er farinn að vinna aftur og allt, með hjálp hækju reyndar en það er bara töff... sjáið Dr. House ;)

Hús ársins: hmm örugglega bara Gyðufellið góða, annars bara fína húsið okkar á Höfðavegi, mér líður alltaf best þar ;)

Lag ársins: ohh mér finnst þetta svo erfitt.. ég eiginlega get ekki valið eitt lag. Segjum supermassive black hole með Muse, paperboat með Lights oooog verð eiginega að nefna Run með Snow patrol. ásamt MÖRGUM fleiri.

Innri friður: hehe jebb halleluja og Amen.

Jæja þá er það komið og þetta tók sko langan tíma, frekar erfitt að hugsa svona tilbaka og velja eitthvað eitt sem skipti meira máli en annað.
Ég vil bara þakka öllum mínum fyrir mjög gott ár og góðar stundir. Þær verða bara fleiri og betri á komandi ári og árum. Fjölskyldan og vinir mínir eru mér allt og ég vil ekki einu sinni ímynda mér lífið án ykkar. Hafið það gott það sem eftir er af þessu jólafríi og bara GLEÐILEGT NÝTT ÁR Koss

LólólinErna Stefnisdóttir



Ég vil bara óska ykkur öllum Gleðilegra Jóla og hafið það sem allra best.

Kveðja Erna Koss

Klukkedí klukk!Erna Stefnisdóttir


Hún Kristin mín Björns klukkaði mig, sem þýðir að ég á að segja frá 7 hlutum sem fáir eða enginn veit um mig!

Here it goes;

1. Ég er litblind! En ég kann þó að kaupa mér eitthvað í stíl! hahaha

2. Ég vil fá mér kærasta! Skemmtileg tilviljun að Ég vil fá mér kærustu  með Hjálmum er akkurat í útvarpinu!! - En ekki það að ég sé ekki ánægð að vera ein, kannski hefur jólin þessi áhrif á mig.

3. Ég er svakalega hrædd við dauðann! Má helst ekki pæla of mikið í því! En þetta er allt að koma þar sem ég er farin að ljúga að sjálfri mér að þú farir þangað sem þú vilt fara, sem þýðir að ég fari með öllum mínum beint á tónleika með Jeff Buckley ;*

4. Ég laðast að nafninu Kristín! Já gaman að segja frá því að 3 af mínum bestu vinkonum heita Kristín! Kitta mín, Kristín Björns og Kristín Gríms ;*

5. Ég get verið svakalega feimin! Já ótrúlegt en satt þá getur þessi stuðbolti undir vissum kringumstæðum verið pínu feimin, en það kemur ekki oft fyrir, sem betur fer.

6. Ég er sjúklega flughrædd! Komst að því þegar ég vann á Reyðarfirði og flaug þar af leiðandi alltaf heim í frí! En flugfreyjan sem var í vélinni til Rhodos í sumar hjálpaði mér reyndar mikið, sagði að þegar það væri ókyrrð þá væri þetta eins og að keyra á gömlum malarvegi, bara pínu holur í veginum, allt í góðu!

7. Garún er víst einhversskonar amma mín! Hafiði ekki heyrt söguna af Djáknanum á Myrká ?? Jebb konan sem hann elskaði hét víst Guðrún og þegar hann var að kalla á hana fyrir utan húsið hennar sagði hann alltaf Garún því maður getur víst ekki sagt Guð þegar maður er dáinn, það segir sagan allavega, en já merkilegt nokk!!

Og þar hafiði það, finnst ykkur þið ekki þekkja mig örlítið betur núna? hehe
Ég vil klukka Kittu mína, ElínEllu ooooog Gyðu!! :)

P.s FER HEIM Á MORGUN!!! :D vííííííí

Nú mega jólin sko koma :DErna Stefnisdóttir


Ég fór í skólann í dag að sækja einkunnirnar mínar! Ég var mikið að spá í að bíða bara með það fram yfir áramótin, en nei nei !! Haldiði að stelpan hafi ekki náð öllu!! En ekki hvað ;)
Ég fékk sem sagt 6 í sögu og íslensku, 7 í ensku og spænsku, 8 í félagsfræði og 9 í sálfræði!!! Já góðan daginn!! ;D Mikið er ég glöð, það borgar sig að vera dugleg að læra fyrir próf því ekki vill maður falla.

Nú eru bara 2 dagar þangað til ég fer heim til fjölskyldunnar og mikið hlakka ég til! Í dag ætla ég bara að dúlla mér að taka til og byrja að pakka inn gjöfunum og svona, hlusta á jólalög og narta í piparkökur, haldiði að það sé fínerí :)

Á laugardaginn var pínu gleði svona til að fagna því að próflestur var búinn. Andri og Heiða komu í kaffi til mín um daginn og voru hjá mér frammá kvöld bara að spjalla og borðuðum saman og svona. Gyða og Lára komu svo til mín og planið var að fara í útskriftar/kveðjuparty hjá henni Melkorku minni. Hún er að verða stúdent þessi elska og er svo að fara að ferðast um suður-ameríku í 3 mánuði, ohh pæliðí ævintýri :D
Heiða ætlaði sér bara heim að læra fyrir próf en hver stenst það að skemmta sér með mér ? Auðvitað náði ég að plata hana með okkur og það var alveg feiknar fjör!!!
Ég hitti engan annan en JOHNNY NAZ a.k.a Erp og auðvitað varð ég að spjalla aðeins við kappann! Hehehe ég er hallærisleg ég veit ;) Ég er bara svo mega fúl útí Skjá 1 að endursýna ekki þessa mögnuðu þætti...

En elskurnar ég ætla að fara að undirbúa jólin og ferðalagið heim :)

Kv. Erna SEM NÁÐI ÖLLU :D *mega glöð*

*Forvitin*Erna Stefnisdóttir


Þessi tími fer alveg með mig, ég verð svo forvitin og hún bara tekur öll völd!
Allir að kaupa pakka handa manni og fólk passar sig alveg á því að láta mann vita þegar það er búið að kaupa pakkann handa manni!
Ég var sem sagt að sjá pakkann sem að Helga Dóra gefur mér, hún var nýbúin að tilkynna mér það að ég fengi einn stóran pakka í staðinn fyrir að pakka því inn í nokkra... þurfti hún að segja það ? Þetta gerði forvitnina ennþá meira forvitna !
Svo kem ég heim úr vinnu áðan og þá var allt morandi í pökkum hérna á eldhúsborðinu, Helga hafði verið dugleg á meðan ég var að vinna sem sagt... Helga var ekki heima þegar ég kom þannig að ég fór að skoða :D EN það voru engir merkimiðar! Þannig að ég bara ákvað hvað var í hverjum og hver átti að fá hvað... auðvitað átti stærsti pakkinn að fara til mín =) Svo kom Helga heim og ég fljót að spurja hana spjörunum úr en hún tilkynnti mér það að enginn af þessum pökkum væri handa mér! Þannig að ég náttla vissi hver átti að fá hvað og fór að spurja, hvað er þetta ? hvað er þetta ? Svo lyfti ég upp einum, hvað er þetta ?? Þá kemur upp þessi svaka svipur á Helgu og hún segir Hættu þessari forvitni krakkaskítur! (já hún talar svona fallega við mig) :) Þannig að nú veit ég hvernig minn pakki lítur út :D:D

En ég elska þennan tíma líka svo mikið, mér finnst svo gaman að gefa gjafir og þetta er alltaf svo mikið leynimakk :) Hlakka svo til þegar allir eru búnir að opna og vildi að ég gæti séð svipinn á öllum sem fá pakka frá mér :) Aðeins 9 dagar þangað til ég fer heim og jólin eru þarnæstu helgi !! HAHA stutt í þetta :)
En já vildi bara aðeins blogga um það hvað ég hata og elska þennan tíma :)

Adios !! Jóla-Erna

Próflestur!Erna Stefnisdóttir

Próflesturinn er þá hafinn.. og það þýðir bara eitt!!! Styttra þangað til að ég fer heim til Eyja!! Hlæjandi jeiiij
Ég fór sem sagt í mitt fyrsta próf í dag, ÍSL 403.. mér gékk svona lala bara, ekki nógu vel miðað við hvað ég lærði mikið!! En ég vona nú að ég hafi náð! *Fingers krossed*

Ég verð að fara að fjárfesta í kaffivél á heimilið, það er svo hressandi að drekka kaffi yfir lærdóminum, mér líst ekki nógu vel á að drekka alla þessa orudrykki eins og ég er búin að vera að gera... maður nær ekkert að sofna á nóttinni og svona Hissa Ekki það að kaffið hafi ekki þannig áhrif líka, mér finnst það bara einhverveginn meira af orkudrykkjunum, svo verð ég svo ör og fæ hraðan hjartslátt og líður hálf kjánalega hehe... kaffið heldur manni vakandi og það er það eina sem þarf Ullandi

Næsta próf er svo á fimmtudag og svo 3 próf í næstu viku, þannig að þessar fyrstu tvær vikur af Desember mánuði eiga eftir að einkennast af próflestri og vinnu hjá mér, eins og öllum skólakrökkum! Svo er það bara kaupa jólagjafir í flýti og drífa sig svo heim í kotið til mömmu og pabba Koss Það verður svo ljúft.

Bið þá bara að heilsa í bili, er farin að slappa af! Ætla að leyfa mér það í kvöld Ullandi
Kveðja Lestrarhesturinn!



Prófíll

  • Nafn: Erna Stefnisdóttir
  • Staður: Vestmannaeyjar!
  • Atvinna: Pizza 67
  • Um mig: Eyjapæja með meiru!
  • Annað: How u doing ?

Innskráningar kubbur

Atburðarteljari

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvað gerir þú í lífinu?

Leikur dagsins